> Lovísublogg
Lovísublogg
Hakuna Matata


14.11.03  

Úff! Tvö verkefni af fjórum að verða búin. Þá eru bara tvö eftir fyrir mánudaginn. Þvílík geðveiki sem er búin að vera hérna undanfarna daga. Við vorum í Laugarnesskóla í skólaheimsókn síðustu þrjá dagana og það var bara fínt. Gaman að reyna að komast að því út á hvað þetta nám mitt gengur hérna:)

Eftir að kanínurnar á efri hæðinni hættu með sinn hávaða um miðjar nætur (heyrist nú samt af og til í rúminu þeirra sem er að gliðna í sundur), fengum við nýjan hávaðakall. Það er róninn sem býr á hæðinni fyrir neðan okkur. Við Hildur héldum að við yrðum ekki eldri í nótt um hálftvö leytið þegar við heyrðum „So this is christmas, and a happy new year" og svo framvegis! Já krakkar mínir, svona er að búa í gettóinu... Helgin verður róleg, enda er ég að fara að vinna og er enn að jafna mig eftir síðustu helgi. Þarf nú samt líka að læra soldið og svona, en það er nú alltaf gaman að því;)

Segi bara góða helgi við ykkur:)

Lovísa skrifaði | 11:32
|

9.11.03  

Mig langar helst ekkert til að tala um gærkvöldið... Ég gekk um Gaukinn í MA-partýinu og tjáði að ég held næstum öllum sem ég talaði við hvað viðkomandi væri nú æðislegur og sætur og allt það. Meinti allt sem ég sagði en er samt á heví bömmer... Alltaf gaman að vera ég! Er búin að vera þynnri en smjörpappír í dag og það er ekkert að ganga neitt að jafna sig á því. Æj ég jafna mig þá bara á morgun! Það var gaman í gær en kvöldið tók furðulega stefnu og endaði ömurlega sem varð til þess að núna finnst mér eins og það hafi bara verið la la og ekkert meira en það. Fúlt! Langar samt að segja við Hörpu sætu sem var í FG-inu, sorry og takk:)

Var samt voða gaman að hitta fólkið og svona, get ekki skrifað meira, tölvuskjárinn of bjartur.

Lovísa skrifaði | 21:56
|

Skoða gestabókina
Skrifa í gestabókina
gamalt efni
tenglar